|
mánudagur, 06 febrúar 2012 16:10 |
|
Nemendur í 5. bekk nýttu sér snjóinn í einni stærðfræðikennslustund og unnu snjólistaverk. Fyrirmælin voru þau að í listaverkunum átti að koma fram eitthvað af formunum hringur, þríhyrningur, ferhyrningur o.s.frv. Verkefnið gekk mjög vel og lögðu allir sitt af mörkum. Fleiri myndir má finna í myndasafni.

|
|
fimmtudagur, 26 janúar 2012 14:36 |
|
Miðvikudaginn 25. janúar fóru nemendur og kennarar 3.bekkjar í heimsókn í Mjólkursamsöluna. Þar fræddumst við um gamla og nýja tíma í mjólkuriðnaðinum. Við fengum margt að sjá. Það sem okkur fannst áhugaverðast var m.a. pökkunarsalurinn, ísgerðin, frystiklefinn sem geymir allan ísinn og Lalli töframaður sem sýndi töfrabrögð okkur til mikillar gleði. Í lokin fengum við fínar veitingar í boði Mjólkursamsölunnar og tókum þátt í getraun. Þetta var skemmtileg og fróðleg ferð.

|